21.04.2026
Við viljum minna á útivistarreglur fyrir börn og unglinga nú þegar vorið er að ganga í garð. Reglurnar eru settar með velferð og öryggi barna að leiðarljósi og mikilvægt er að við vinnum saman að því að fylgja þeim.
Fram til 1. maí:
Börn 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 20:00.
Unglingar á aldrinum 13–16 ára mega vera úti til kl. 22:00.
Eftir 1. maí:
Börn 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 22:00.
Unglingar á aldrinum 13–16 ára mega vera úti til kl. 24:00.
Foreldrar/forráðamenn mega stytta útivistartímann en ekki lengja hann frá þessum viðmiðum. Við hvetjum ykkur til að ræða þessar reglur við börnin ykkar og tryggja að þau viti hvaða tímamörk gilda. Einnig er mikilvægt að foreldrar fylgist með ferðum barna sinna og viti hvar þau eru stödd hverju sinni.
07.04.2026
Á morgun, miðvikudaginn 8. apríl kl. 8:15-9:15 verður opinn skólaráðsfundur í Kópavogsskóla. Efni fundarins er lestur og lesskilningur og hvernig hægt er að efla hvort tveggja. Um er að ræða fræðslu frá Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur, kennsluráðgjafa og svo verða vinnu- og umræðuhópar um efnið.
25.03.2026
Kópavogsskóli heldur árshátíðir nemenda í þessari síðustu viku fyrir páskafrí.
25.03.2026
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk í Kópavogi er árlegur viðburður sem hefst á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Í ár var lokakeppnin haldin í Salnum í Kópavogi þann 24. mars og kepptu þar tveir fulltrúar nemenda úr 7. bekk úr skólum Kópavogs. Óskar Sæmundur Sigfússon og Marel Briem kepptu fyrir hönd Kópavogsskóla og var Dagur Ómarsson þeirra varamaður. Hlynur Þorsteinsson, leikari og kennari í stuttmyndagerð við skólann var þeim innan handar við æfingar og aðstoðaði þá fyrir lokakeppnina. Okkar menn stóðu sig með miklum sóma og lenti Marel í 2. sæti keppninnar í ár. Við óskum þessum drengjum til hamingju með góða keppni og frábæran árangur.
13.03.2026
Skólaráð og foreldrafélag Kópavogsskóla hafa samþykkt breytingu á skólaslitum hjá nemendum í 1. – 9. bekk í vor þar sem stór hluti starfsmanna í Kópavogsskóla eru að fara í námsferð erlendis. Skólaslitin áttu að vera samkvæmt skóladagatali að morgni 10. júní en færast til 9. júní.
9. júní er merktur á skóladagatali sem skertur/uppbrotsdagur hjá nemendum og mun skólinn hefjast samkvæmt stundtöflu þann dag en ljúka klukkan 11:55. Frá þeim tíma fara þeir sem eru skráðir í frístund þennan dag í frístund en aðrir nemendur fara heim. Skólaslitinn verða síðan kl. 15:00 hjá nemendum í 1. – 9. bekk í kennslustofum hjá umsjónarkennurum og útskrift hjá 10. bekk verður kl. 16:30 í sal skólans.
10.03.2026
Í febrúar síðast liðnum tóku 154 nemendur úr átta skólum á höfuðborgarsvæðinu þátt í stærðfræðikeppni í Borgarholtsskóla og var það metfjöldi. Skólarnir sem tóku þátt komu flestir úr nágrenni Borgarholtsskóla, Mosfellsbæ, Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal en einnig komu nemendur frá Norðlingaholti, Árbæ, Breiðholti og Kópavogi og skráði Andri stærðfræðikennari nokkra nemendur til keppni úr 9. og 10. bekk Kópavogsskóla. Keppendur úr áttunda bekk voru 50 talsins, 48 úr níunda bekk og 56 úr tíunda bekk.